Ráðgjöf
Vinnuvistfræði
Ráðgjöf
Ráðgjöf
Leiðarvísir líkamans býður upp á ráðgjöf í ýmsu formi
- Fyrirlestrar til vinnustaða, félagasamtaka eða hópa
- Almenn eða sérsniðin að vinnustaðnum
- Fyrirlestrar til grunnskóla- eða framhaldsskólanemenda
- Áhersla á góða líkamsstöðu, líkamsvitund og líkamsbeitingu
- Úttekt á vinnuaðstæðum og ráðgjöf
- Hvað má betur fara, ráðgjöf við stillingar á stólum/borðum og hjálpartækjum
- Fræðsla til íþróttafélaga
- Forvarnir og ráðgjöf
Forvarnir stoðkerfisvandamála eru mikilvægar en veikindafjarvistir starfsmanna geta verið þungur baggi í rekstri fyrirtækja og fjarvistir vegna stoðkerfisvandamála á borð við bak- og höfuðverkja eru meðal algengustu ástæðna veikinda starfsmanna.
Til að koma í veg fyrir stoðkerfisvandamál á seinni stigum lífsins er nauðsynlegt að þekkja hvernig fara megi sem best með líkamann en með góðri fræðslu er hægt að seinka eða koma í veg fyrir þörfina á t.d. gerviliðum í hnjám/mjöðmum, draga úr líkum á bakvandamálum og álagsmeiðslum.